Eplakaka m karamellusósu

Hita ofninn í 170°C

115 gr mjúkt smjör
300 gr eða 3,5 dl sykur
sett í hrærivél og hrært þartil ljóst
2 egg
sett útí, eitt í einu, hræra vel á milli

250 gr eða 5 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
1 tsk kanill
1/2 tsk matarsódi
blandað saman i skál og sett útí smám saman

5 epli skorin í bita
100 gr möndlur
100 gr valhnetur eða eftir smekk
sett samanvið með sleif.

Setjið deigið í form sem er c.a 33×25 cm af stærð.
Baka í 50 mínútur

Karamellusósa

75 gr brætt eða fljótandi smjör
1/2 dl sykur
1/2 dl púðursykur
1/2 dl rjómi

Hita að suðu og hræra vel í allan tímann.

Ís og eða rjómi með

Leave a comment